Ferill 406. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


125. löggjafarþing 1999–2000.
Þskj. 1202  —  406. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985, með síðari breytingum.

Frá meiri hluta samgöngunefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Helgu Haraldsdóttur og Jóhann Guðmundsson frá samgönguráðuneyti. Umsagnir um málið bárust frá Skrifstofu jafnréttismála, Alþýðusambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Útlendingaeftirlitinu, lögreglustjóranum í Reykjavík, dómsmálaráðuneytinu, borgarráði Reykjavíkurborgar og Samtökum ferðaþjónustunnar.
    Frumvarp þetta er lagt fram í kjölfar starfs viðræðunefndar sem hafði það hlutverk að sporna gegn starfsemi svonefndra „erótískra“ veitingastaða. Í því er lagt til að lögum um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985, verði breytt á þann veg að flokkum veitingastaða yrði fjölgað. Er markmiðið með því að sveitarstjórnir geti haft áhrif á hvar slík starfsemi fer fram með því að kveða á um það í skilmálum aðal- eða deiliskipulags hvar heimilt sé að reka slíka staði. Þá geti þau einnig sett nánari skilyrði um það skemmtanahald sem fram fer á nektardansstöðum, umfram þau skilyrði sem gilda um skemmtanahald á öðrum veitingastöðum.
    Meiri hlutinn leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu. Helsta efnisbreytingin er að nánar er kveðið á um hvers konar starfsemi falli undir hvern lið í flokkum veitingastaða í 2. gr. frumvarpsins. Er m.a. kveðið á um að ef aðaláhersla er lögð á áfengisveitingar og sýningu á nektardansi í atvinnuskyni teljist veitingastaður næturklúbbur í skilningi frumvarpsins. Einnig er lagt til að nýr flokkur bætist við, dansstaðir. Er með því skilið á milli slíkra staða og næturklúbba. Þá er lagt til í ákvæði til bráðabirgða að veitingastaðir sem falla undir nýja flokka skv. 2. gr. frumvarpsins skuli afla sér nýrra leyfa til reksturs fyrir 1. janúar 2001.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Alþingi, 8. maí 2000.



Árni Johnsen,


form., frsm.


Hjálmar Árnason.


Jón Kristjánsson.



Guðmundur Hallvarðsson.


Arnbjörg Sveinsdóttir.


Þorgerður K. Gunnarsdóttir.



Lúðvík Bergvinsson.


Kristján L. Möller.