Forseti (Halldór Blöndal):
Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir í garð okkar alþingismanna og starfsmanna þingsins.
Ég vil nota þetta tækifæri, nú á fyrsta fundi Alþingis á þessu ári, til að óska alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs. Jafnframt sendi ég landsmönnum öllum mínar bestu nýársóskir. Ég vænti þess að störf okkar á síðari hluta þessa þings verði þjóðinni til farsældar.