Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Ég vil biðja hv. þingmenn um að gjamma ekki fram í í andsvara- og ræðutímum. Núna er einungis ein mínúta til andsvara þannig að það er ákaflega óþægilegt og setur ljótan svip á þennan fund þegar menn gjamma fram í. (ÖJ: Á það við um ráðherra líka?) Það á við um alla, hv. 13. þm. Reykv., það á við alla sem hér eru inni.