Jón Bjarnason:
Herra forseti. Samkvæmt sannfæringu minni gengur þetta frv. á svig við dóm Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalagsins gegn Tryggingastofnun ríkisins. Þetta frv. skerðir að mínu mati þær réttarbætur sem Hæstiréttur dæmdi öryrkjum með skýrum og afdráttarlausu dómsorði Því mótmæli ég þessu frv. og segi nei.