Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Þetta er punctum saliens varðandi málsmeðferð þessa máls og útlendingafrv. sem fyrir liggur í allshn. Þau frv. sem bárust hingað inn á haustdögum og reyndar seint fyrir jól voru ekki fullkomlega í samræmi við flóttamannasamninginn sem við höfum staðfest eða fullgilt. Þess vegna er ég afskaplega ánægð með þetta svar því að það er veganesti fyrir þessar tvær nefndir við vinnu þeirra við málefni útlendinga á næstu vikum.