Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):
Herra forseti. Þar sem ég á sæti í hv. heilbr.- og trn., þangað sem þetta mál fer, þá mun ég a.m.k. óska eftir því við formann nefndarinnar að skoðaðar verði fleiri hliðar á þessu máli og einmitt hugmyndir um t.d. umboðsmann neytenda og ég efast ekki um að nefndin mun reyna að fá til sín upplýsingar um þá þætti sem hv. þm. nefndi.