Breyting á stjórn þingflokks Samfylkingarinnar

Mánudaginn 12. febrúar 2001, kl. 15:09:01 (4397)

2001-02-12 15:09:01# 126. lþ. 67.93 fundur 287#B breyting á stjórn þingflokks Samfylkingarinnar# (aths. um störf þingsins), Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 67. fundur, 126. lþ.

[15:09]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég vil við þetta tækifæri þakka hv. 4. þm. Reykn., Rannveigu Guðmundsdóttur, fyrir gott og ánægjulegt samstarf á Alþingi síðan ég var kjörinn forseti Alþingis og raunar miklu lengur og vænti þess að henni nýtist tíminn vel þegar hún gefur sig með öðrum hætti að þingstörfum.

Ég vil bjóða nýkjörinn formann þingflokks Samfylkingarinnar, Bryndísi Hlöðversdóttur, velkomna til þeirra starfa.