![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka ráðherranum þetta svar. Mér sýnist eftir að hafa skoðað málið að þetta sé hið besta mál en við munum að sjálfsögðu skoða hvort á því séu nokkrir annmarkar þegar við vinnum með það í nefnd. En eftir skoðun mína tel ég að það sé mjög jákvætt og tímabært að við gerumst aðilar að þessum samningi.