Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Miðvikudaginn 09. maí 2001, kl. 18:23:49 (7345)

2001-05-09 18:23:49# 126. lþ. 118.8 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv. 40/2001, JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 118. fundur, 126. lþ.

[18:23]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Mér kemur á óvart að hv. þm. Pétur H. Blöndal hafi ekki vitað af þessari bókun. Ég vil leyfa mér að spyrja hv. þm.: Mun hann í ljósi þessarar bókunar og þess ferils sem þetta mál hefur verið í beita sér gegn því innan þingflokks Sjálfstfl. að þetta frv. um hlutafélagavæðingu Orkubús Vestfjarða verði samþykkt fyrr en það sé alveg ljóst að því fylgi ekki nauðakröfur sem eru alveg borðleggjandi og liggja fyrir hendi nú við afgreiðslu málsins? Mun hann, herra forseti, beita sér þá gegn því innan flokks síns að verið sé að fara með þessum afarkostum að Vestfirðingum?