Frsm. allshn. (Þorgerður K. Gunnarsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti hv. allshn. á þskj. 1173 í máli 628.
Með frumvarpinu er lagt til að Alþingi samþykki með 2/3 atkvæða að mörk Suðvesturkjördæmis og Reykjavíkurkjördæma suður og norður verði breytt í samræmi við samkomulag Reykjavíkur og Mosfellsbæjar frá 28. febrúar 2001.
Mælir nefndin með því að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.