Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. vegna frv. til laga um breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum. Nefndin fjallaði um þetta mál og sendi það til umsagnar. Þess er getið á þskj. 1213.
Það er skemmst frá því að segja, virðulegi forseti, að nefndin leggur til að frv. verði samþykkt. Öll nefndin stendur að því.