Virðisaukaskattur

Föstudaginn 11. maí 2001, kl. 12:10:26 (7511)

2001-05-11 12:10:26# 126. lþ. 120.27 fundur 686. mál: #A virðisaukaskattur# (hópferðabifreiðar) frv. 57/2001, Frsm. VE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 120. fundur, 126. lþ.

[12:10]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að rétt sé að taka fram í framhaldi af ræðu hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur að þetta mál var rætt og farið var yfir þetta með fulltrúum fjmrn. og hef ég einnig rætt þetta mál við fjmrh. Af hans hálfu og fulltrúa ráðuneytisins kom fram að þetta var mjög meðvituð ákvörðun af þeirra hálfu í ljósi þeirra bifreiða sem þarna eiga í hlut og ekki var samstaða við fjmrn. og ráðherra að flytja dagsetninguna til.