ÁE fyrir ÞSveinb

Þriðjudaginn 15. maí 2001, kl. 13:30:08 (7818)

2001-05-15 13:30:08# 126. lþ. 123.96 fundur 550#B ÁE fyrir ÞSveinb#, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 123. fundur, 126. lþ.

[13:30]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Borist hefur svohljóðandi bréf:

,,Þar sem Þórunn Sveinbjarnardóttir, 12. þm. Reykn., getur ekki sótt þingfundi á næstunni vegna veikinda, leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþm. Samfylkingarinnar í Reykn., Ágúst Einarsson prófessor, taki sæti á Alþingi í fjarveru hennar.

Þetta tilkynnist yður hér með, herra forseti.

Bryndís Hlöðversdóttir,

formaður þingflokks Samfylkingarinnar.``

Ágúst Einarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.