Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Fimmtudaginn 17. maí 2001, kl. 11:53:48 (7968)

2001-05-17 11:53:48# 126. lþ. 127.1 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv. 75/2001, 708. mál: #A fjarskipti# (skilyrði rekstrarleyfis) frv. 72/2001, ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur, 126. lþ.

[11:53]

Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar til að spyrja hv. þm. Lúðvík Bergvinsson hvað hann meini nánar tiltekið með því að skilja grunnnetið frá. Er hann þá að meina að stofnað verði ríkisfyrirtæki um grunnnetsþjónustuna? Það væri ágætt að fá nánari útskýringar á því tiltekna atriði.