Forseti (Halldór Blöndal):
Að gefnu tilefni vil ég taka fram að ég hef ekki verið með ávítur við einstaka þingmenn, stjórnarandstöðu eða stjórnarflokka. Ég hef einungis svarað þeim spurningum efnislega sem hefur verið beint til mín með þeim vitsmunum sem ég hef.