Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Forseta hafa borist tilkynningar um kosningu formanns og varaformanns alþjóðanefnda.
Í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Einar K. Guðfinnsson formaður og Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður.
Í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Lára Margrét Ragnarsdóttir formaður og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.
Í Íslandsdeild NATO-þingsins: Tómas Ingi Olrich formaður og Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður.
Í Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Ísólfur Gylfi Pálmason formaður og Sigríður Jóhannesdóttir varaformaður.
Í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Árni Johnsen formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.
Í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Vilhjálmur Egilsson formaður og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.
Í Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins: Kristján Pálsson formaður og Katrín Fjeldsted varaformaður.
Í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Guðjón Guðmundsson formaður og Jónína Bjartmarz varaformaður.