Úttekt á stjórnunar- og eignatengslum milli fyrirtækja

Mánudaginn 09. október 2000, kl. 15:29:30 (205)

2000-10-09 15:29:30# 126. lþ. 5.1 fundur 30#B úttekt á stjórnunar- og eignatengslum milli fyrirtækja# (óundirbúin fsp.), viðskrh.
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 126. lþ.

[15:29]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Þessi spurning kemur flatt upp á mig þannig að ég get ekki svarað því á þessari stundu hvort þetta er hægt. Mér finnst svo sem engin ástæða til annars en að athuga það. En mér finnst þetta óþarfa óþolinmæði í hv. þm. Miðað við það að skýrslan kemur í heild sinni út í vetur þá held ég að hann geti alveg lifað með því að hún komi bara út þegar hún verður tilbúin.