Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Ég veit að hv. þm. skemmtir sér ákaflega vel í umræðunni. En ég átta mig ekki alveg á hvað hann á við þegar hann segir: ,,Þið farið ekkert fram með málið.`` Ég vona að hv. þm. geri sér grein fyrir því að þetta er mitt mál og það er spurning um hvenær ég fer fram með þetta mál en ekki einhverjir aðrir.