Dreifð eignaraðild að viðskiptabönkum og öðrum lánastofnunum

Mánudaginn 09. október 2000, kl. 16:34:59 (230)

2000-10-09 16:34:59# 126. lþ. 5.9 fundur 8. mál: #A dreifð eignaraðild að viðskiptabönkum og öðrum lánastofnunum# (breyting ýmissa laga) frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 126. lþ.

[16:34]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég get tekið undir einmitt þetta orðalag sem kom fram hjá hv. þm., að skoða í alvöru að fara í aðgerðir. Ég vil ekki að þessari syrpu ljúki með því að það sem standi upp úr sé það sem kom fram hjá hv. þm. Sighvati Björgvinssyni því mér fannst hann ýkja nokkuð túlkun mína á þessu máli. En ég get tekið undir að það verði skoðað í alvöru að fara í aðgerðir.