Ögmundur Jónasson:
Herra forseti. Ég rakti hér mál sem snertir viðskrn. og bankamálaráðherrann og óskaði eftir upplýsingum um hvort þessi viðskiptasamningur upp á einn milljarð, þar sem talað er um fjármögnun upp á einn milljarð og stefnumótandi þátttöku Landsbankans í þessu fyrirtæki, hafi verið borinn undir viðskrh. Ég vildi heyra skoðun hæstv. ráðherra á þessum viðskiptum.