Viðvera ráðherra í fyrirspurnatíma

Miðvikudaginn 11. október 2000, kl. 13:52:15 (364)

2000-10-11 13:52:15# 126. lþ. 7.94 fundur 47#B viðvera ráðherra í fyrirspurnatíma# (aths. um störf þingsins), Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 7. fundur, 126. lþ.

[13:52]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Sá tími sem ætlaður er til umræðu um störf þingsins er liðinn. (ÖJ: Herra ...) Hv. þm. hefur þegar talað tvisvar. Sá tími sem ætlaður er til umræðu um störf þingsins er liðinn.

Forseti tekur undir það sem hér hefur komið fram að nokkrir ráðherrar eru staddir erlendis og aðrir eru ekki tilbúnir með svör við þeim fyrirspurnum sem þeim hafa borist en forseti mun að sjálfsögðu taka athugasemd hv. 4. þm. Reykn. til umræðu á næsta fundi forsn.