Einkarekstur í heilbrigðisþjónustu

Mánudaginn 30. október 2000, kl. 15:08:19 (894)

2000-10-30 15:08:19# 126. lþ. 15.1 fundur 61#B einkarekstur í heilbrigðisþjónustu# (óundirbúin fsp.), heilbrrh.
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 126. lþ.

[15:08]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):

Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að þessi fsp. komi fram því að mikið hefur verið rætt um einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni á undanförnum missirum.

Hvað sjúkrahúsin varðar þá er engin einkavæðing í bígerð. Það er einfalt svar við spurningu hv. þm.