Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):
Nú er sá tími á enda runninn sem ætlaður er fyrir umræður um störf þingsins. Forseti áréttar að samkvæmt 49. gr. þingskapa verður margnefndri fyrirspurn svarað innan tilskilins frests það sem um getur. Forseti á ekki annan kost en að ljúka umræðunni en ef hæstv. ráðherra vill ræða fundarstjórn forseta er það heimilt. Svo virðist ekki vera.