Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ástu Möller fyrir að hafa bent á þessi umferðaröryggisatriði og þau ásamt fleirum sem hafa komið fram hér í dag munum við eflaust taka til endurskoðunar og íhugunar í þeim starfshópi sem ég er formaður í en það er starfshópur um að endurskoða lög og reglur er tengjast umferðaröryggismálum. Ég þakka þær góðu ábendingar sem hafa komið fram hér í dag.