Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Já, það fór eins og mig grunaði að væri ekki mikið á bak við það sem hv. þm. sagði hér. ,,Miklar líkur``, ,,talið vera``, sagði hv. þm. Það er nefnilega þannig að ekki hefur verið hægt að rekja þessa bruna til skorts á eftirliti. Ég held að hv. þm. ætti að kynna sér mál áður en hann hefur uppi stóryrði í ræðustól á Alþingi.