Flm. (Ögmundur Jónasson) (andsvar):
Herra forseti. Ég kem fyrst og fremst upp til þess að taka undir þetta. Það er mjög mikilvægt að menn ástundi vönduð vinnubrögð hvort sem það er af hálfu ráðherra eða stjórnarandstöðu eða þingmanna yfirleitt. Það hefur verið gert af okkar hálfu í þessu máli.