Vatnsveitur sveitarfélaga

Mánudaginn 13. nóvember 2000, kl. 17:16:17 (1637)

2000-11-13 17:16:17# 126. lþ. 23.3 fundur 200. mál: #A vatnsveitur sveitarfélaga# (vatnsgjald) frv., félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 126. lþ.

[17:16]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Örlög þessa litla frv. eru náttúrlega senn í höndum hv. félmn. Það er fyrst og fremst undir vilja hennar komið hvort hún verður við þeirri bón sem ég kem til með að beina til hennar.

Ég hef ekki, að ég muni, lofað þessu hvað eftir annað. Ég beitti mér fyrir því að breyta reglugerð um jöfnunarsjóð en sú breyting var ófullnægjandi. Þegar í ljós kom að hún var ófullnægjandi þá varð að grípa til annarra ráða og það er akkúrat það sem þarf nú að gera.