Tómas Ingi Olrich (andsvar):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir svarið. Það er ánægjulegt að þetta mál er í fullum gangi. Ég lít svo á að þarna sé um að ræða mikilvægt mál og er þess fullviss að utanrmn. mun taka á þessu máli af festu og reyna að gera það sem hún getur til þess að málið nái afgreiðslu á þinginu.