Innflutningur dýra

Fimmtudaginn 16. nóvember 2000, kl. 16:17:08 (1900)

2000-11-16 16:17:08# 126. lþ. 26.5 fundur 154. mál: #A innflutningur dýra# (rekstur sóttvarna- og einangrunarstöðva) frv., DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 126. lþ.

[16:17]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ekki veit ég sönnur á því hvort bestu erfðaefnin séu í Þýskalandi en ekki hér á Íslandi. Ég mundi vilja fá það óyggjað. En ef við göngum í Evrópusambandið eins og hv. þm. vill svo gjarnan verður leyft að flytja inn hvort sem það eru lifandi dýr, fósturvísar eða sæði.