Félagsþjónusta sveitarfélaga

Þriðjudaginn 21. nóvember 2000, kl. 21:11:12 (2073)

2000-11-21 21:11:12# 126. lþ. 28.8 fundur 242. mál: #A félagsþjónusta sveitarfélaga# (heildarlög) frv., ArnbS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 28. fundur, 126. lþ.

[21:11]

Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):

Hæstv. forseti. Barnaverndarlög taka til allra barna, hvort sem þau hafa lent í þeirri ógæfu að verða fíkniefnum að bráð eða ekki. Að öðru leyti eiga þau börn auðvitað eins og aðrir möguleika á þeirri þjónustu sem félagsþjónusta sveitarfélaga veitir. Ég sé ekki að þau séu nokkuð undanskilin þeirri þjónustu sem þar er fyrir hendi.