![](http://www.althingi.is/myndir/althlit.gif)
Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það síðasta sem hæstv. ráðherra sagði um þetta mál sem ég man eftir var eitthvað á þá leið að menn mundu sjá þetta frv. fyrir áramót. Nú frétti ég að það muni ekki verða lagt fram fyrir áramót, menn séu farnir að tala um dagsetningu á næsta ári þannig að ég tel að málið sé nú þegar farið að dragast. Í ljósi þess hafði ég yfir þessi orð hér áðan. En það er gott ef menn halda í vonina. Í hana eiga menn auðvitað að halda sem allra lengst og það gerir hæstv. ráðherra.