Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svörin og fagna því að þessi mál eru til skoðunar. Það er fyllilega ástæða til þess, að mínu viti, þó ekki sé til annars enn að eiga viðræður og benda þeim ágætu mönnum sem fyrir þessu standa á að þeir eru hluti af heild og þurfa að haga sér í samræmi við það.