Málefni nemenda og staðan í kjaradeilu framhaldsskólakennara

Þriðjudaginn 28. nóvember 2000, kl. 13:37:14 (2258)

2000-11-28 13:37:14# 126. lþ. 33.94 fundur 146#B málefni nemenda og staðan í kjaradeilu framhaldsskólakennara# (umræður utan dagskrár), menntmrh. (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 33. fundur, 126. lþ.

[13:37]

Menntamálaráðherra (Björn Bjarnason):

Herra forseti. Ég kýs að svara þeim spurningum sem fyrir mig voru lagðar en ekki fara í skítkast um þetta mál eins og hv. þm. gerði í inngangi ræðu sinnar.

Fyrst er spurt: Væri ennþá unnt að bjarga haustönninni ef deilan leystist á allra næstu dögum?

Það er rétt að í dag eru réttar þrjár vikur frá því þetta verkfall hófst. Við eðlilegar aðstæður mundu próf hefjast nú um mánaðamótin, en haustönn lýkur fyrir jól. Ef verkfall framhaldsskólakennara leysist í þessari viku og kennsla gæti hafist í byrjun næstu viku, ætti að vera unnt að ljúka önninni og undirbúa brautskráningu nemenda, enda eru þá þrjár vikur til loka annar. Gera þyrfti sérstakar ráðstafanir í skólum til að þetta gæti gengið eftir og yrði á valdi hvers skólameistara að ákveða það í einstökum skólum.

Þá er spurt: Hver eru viðbrögð menntmrh. við upplýsingum um að framhaldsskólakennarar séu unnvörpum að hverfa til annarra starfa?

Ég er ekki sammála þeirri fullyrðingu að framhaldsskólakennarar séu unnvörpum að hverfa til annarra starfa. Hún er ekki rökstudd að mínu áliti. Væri þetta að gerast mætti ekki síður túlka það sem vantraust kennara í garð þeirra sem fara með umboð þeirra í kjaradeilunni en viðsemjandans. Að sjálfsögðu á það að vera kappsmál ríkisins sem viðmælanda að fá hið hæfasta fólk til starfa á sínum vegum.

Þá er spurt: Er unnið að áætlunum um það í menntmrn. hvernig brugðist verði við því ef deilan dregst enn á langinn og þetta skólaár fer í súginn?

Menntmrn. hefur lagt á ráðin um það með ýmsum hætti, eins og aðrir sem bera hag framhaldsskólans og nemenda fyrir brjósti, hvaða úrræði eru til taks til þess að námsframvinda nemenda raskist sem minnst, leysist þessi deila ekki í bráð. Úrræðin ráðast að sjálfsögðu af lengd verkfallsins. Menntmrh. mælir t.d. fyrir um tilhögun námsmats í aðalnámskrá, sbr. 21. gr. framhaldsskólalaganna, og hlýtur að verða litið til þess þáttar meðal annarra.

Úrræði í einstökum skólum ráðast af ákvörðunum þar. Þannig hefur skólameistari Mennaskólans á Akureyri lýst því yfir hvernig hann telur að unnt sé að ljúka skólanum, leitað verði allra leiða til að nemendur fái lokið námi sínu við skólann með fullgildum hætti næsta vor. Dragist vinnudeilan enn á langinn, ráðgerir skólameistari að fella niður regluleg haustannarpróf í janúar og kenna til vors og prófa þá bæði í haustannar- og vorannaráföngum á reglulegum prófatíma skólans í maí og júní.

Þá hefur verið veitt aukið svigrúm vegna sveinsprófa. Vegna yfirlýsinga frá Iðnnemasambandi Íslands í Morgunblaðinu 25. nóvember sl. um mat á vinnu iðnnema sem eru á námssamningi í verkfalli, vil ég taka fram að samkvæmt framhaldsskólalögum skiptist allt starfsnám á skóla og vinnustað eða fer eingöngu fram í skóla. Nemendur í starfsnámi stunda þannig nám sitt ýmist í iðnmenntaskólum eða í fyrirtæki. Í verkfalli verður sú breyting á að þeir nemendur sem ættu að vera í skóla eru farnir til starfa í fyrirtækjum þar sem þeir uppfylla skilyrði námsskrár um starfsþjálfun. Það er skoðun menntmrn. að þessi vinna nema sé hluti af námi þeirra og eigi því að vera metin að fullu þannig að heildarlengd námsins breytist ekki vegna verkfallsins.

Þá er spurt: Sér menntmrh. einhverjar leiðir til að liðka fyrir lausn deilunnar af sinni hálfu?

Ég hef áður sagt að þótt kallað sé á menntmrh. og hann beðinn um að liðka fyrir lausn deilunnar þá er borin von að orðið verði við slíkum óskum á meðan þær taka ekki mið af efnahagslegum staðreyndum og hinni almennu stefnu sem öll ríkisstjórnin og stuðningsmenn hennar á Alþingi hafa mótað. Engin menntmrh. getur setið í ríkisstjórn og snúist gegn grundvallarstefnu hennar í efnahagsmálum. Allan viðræðutímann hefur menntmrn. hreyft tillögum um starf og skipulag í skólum sem að þess mati eru til þess fallnar að greiða fyrir lausn deilunnar.