Sýslumannsembættið í Ólafsfirði

Þriðjudaginn 12. desember 2000, kl. 14:12:19 (3181)

2000-12-12 14:12:19# 126. lþ. 46.1 fundur 192#B sýslumannsembættið í Ólafsfirði# (óundirbúin fsp.), dómsmrh.
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 126. lþ.

[14:12]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Herra forseti. Ég vil segja að ég er sammála hv. þm. um að áföll hafa vissulega dunið yfir á Ólafsfirði varðandi atvinnulífið. Nauðsynlegt er að eyða óvissu í þessu máli. Það hefur hins vegar tekið nokkurn tíma en ég held að við hljótum að geta náð sátt og samstöðu í málinu. Ég er sammála því að það sé mikilvægt og ég þakka honum fyrir þessa fyrirspurn.