Innflutningur dýra

Fimmtudaginn 14. desember 2000, kl. 13:44:53 (3368)

2000-12-14 13:44:53# 126. lþ. 49.14 fundur 154. mál: #A innflutningur dýra# (rekstur sóttvarna- og einangrunarstöðva) frv. 175/2000, Frsm. meiri hluta HjálmJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 126. lþ.

[13:44]

Frsm. meiri hluta landbn. (Hjálmar Jónsson) (andsvar):

Herra forseti. Þetta frv. til laga um breytingu á lögum um innflutning dýra kveður ekki beinlínis á um þetta en valdið er falið hæstv. landbrh. þannig að hann getur heimilað það. Eftirlitið, varúðarráðstafanirnar, eru á ábyrgð landbrn. eftir sem áður.