Ferill 200. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 362  —  200. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um vatnsveitur sveitarfélaga, nr. 81/1991, með síðari breytingum.

Frá minni hluta félagsmálanefndar.



    Í ljósi þess að vatnsgjald er lögum samkvæmt þjónustugjald lýsir minni hlutinn yfir andstöðu sinni við það að álagning þess skuli bundin tilteknum hundraðshluta af fasteignamati. Í ljós hefur komið að þessi hundraðshluti nægir ekki öllum sveitarfélögum til að standa undir kostnaði við veitta þjónustu, en jafnframt að önnur sveitarfélög nýta þetta hámark án tillits til kostnaðar. Þar með er gjaldið orðið skattur.
    Ef vatnsgjaldið á að flokkast sem þjónustugjald sem eingöngu sé ætlað að standa straum af fyrrnefndum kostnaði sveitarfélaganna og megi því ekki fela í sér hærri álögur en sem honum nemur telur minni hlutinn eðlilegt að sú hámarksheimild sem sveitarfélögunum er sett við ákvörðun upphæða vatnsgjalds í lögum um vatnsveitur, nr. 81/1991, verði felld brott en með því munu tekjur sveitarfélaganna af vatnsgjaldi ávallt standa undir áðurnefndum kostnaði.
    Leggur minni hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:

    Við 1. gr. C-liður greinarinnar orðist svo: Í stað orðanna „allt að 0,3 hundraðshlutum af álagningarstofni“ í 4. mgr. kemur: stofnkostnaði og kostnaði af rekstri vatnsveitna.

Alþingi, 28. nóv. 2000.



Ásta R. Jóhannesdóttir,


frsm.


Guðrún Ögmundsdóttir.