Ferill 156. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 413  —  156. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til fjáraukalaga fyrir árið 2000.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.



    Í ræðu formanns nefndarinnar við 2. umræðu um frumvarpið kom fram að fjallað hefði verið um nokkur mál í nefndinni sem frestað yrði til 3. umræðu að taka ákvörðun um. Umfjöllun um þau mál er nú lokið.
    Tekjur lækka frá frumvarpinu um 1,1 milljarð kr.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verið samþykkt með þeim breytingum sem gerðar eru tillögur um í sérstökum þingskjölum. Þær varða 1. gr. frumvarpsins, sbr. sundurliðun 1 og 2, 5. gr. fjárlaga fyrir árið 2000, um lántökur, endurlán og ríkisábyrgðir, og 7. gr. fjárlaga fyrir árið 2000, þ.e. heimildagrein. Breytingar á sundurliðun 2 nema alls 452,1 m.kr. Einstakar tillögur eru skýrðar í álitinu auk þess sem fjallað verður nánar um þær í framsögu.



SKÝRINGAR VIÐ EINSTAKAR BREYTINGARTILLÖGUR

    

01 Forsætisráðuneyti

190
     Ýmis verkefni.
        1.90 Ýmis verkefni.
Gerð er tillaga um 12,2 m.kr. aukafjárveitingu vegna uppgjörs kostnaðar auðlindanefndar, en nefndin var kosin á Alþingi í kjölfar þingsályktunar í júní 1998. Forsætisráðuneyti annaðist þjónustu við nefndina, þ.m.t. greiðslu kostnaðar við nefndarstarfið. Heildarkostnaður við nefndarstarfið er 22,7 m.kr.
         6.53 Stafkirkja í Vestmannaeyjum. Lögð er til 3 m.kr. aukafjárveiting vegna uppgjörs á framkvæmdum við byggingu stafkirkju í Vestmannaeyjum. Smíði kirkjunnar lauk með vígslu í byrjun ágúst sl. Nú liggja fyrir drög að uppgjöri sem gera ráð fyrir 52,5 m.kr. heildarkostnaði sem er 3 m.kr. umfram fyrri áætlun.

02 Menntamálaráðuneyti

201
     Háskóli Íslands.
        1.02 Rannsóknir og önnur verkefni.
Lagt er til að gjöld og sértekjur skólans verði hækkuð um 4,9 m.kr. til samræmis við leiðréttingu á tekjum af sóknargjöldum á lið 06-735 Sóknargjöld við 2. umræðu fjárlaga fyrir árið 2001.
451     Símenntun og fjarvinnsluverkefni.
        1.11 Símenntun og fjarvinnsluverkefni.
Gerð er tillaga um 6 m.kr. aukafjárveitingu til símenntunarmiðstöðva til að bregðast við símakostnaði. Menntamálaráðuneytið gengur frá úthlutun af liðnum.
974     Sinfóníuhljómsveit Íslands.
        1.01 Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Lagt er til að Sinfóníuhljómsveit Íslands verði veitt 10,2 m.kr. aukafjárveiting til að gera upp gamla skuld við Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins.
989     Ýmis íþróttamál.
        1.90 Ýmis íþróttamál.
Gerð er tillaga um að veita sérstakan 12 m.kr. styrk til að gera upp halla sem varð á landsmóti hestamanna á Melgerðismelum í Eyjafjarðarsveit sumarið 1998. Hestaveira sem kom upp í fyrsta sinn hér á landi nokkrum vikum fyrir mótið setti allar fjárhagsáætlanir úr skorðum. Aðsókn varð minni en gert hafði verið ráð fyrir og áætlanir um tekjur stóðust því ekki.

03 Utanríkisráðuneyti

320
     Sendiráð, almennt.
        1.01 Ýmis sameiginleg útgjöld sendiráða og fastanefnda.
Lögð er til 77,3 m.kr. aukafjárveiting vegna aukins kostnaðar við sendiráð og fastanefndir. Hlutdeild ráðuneytisins í greiðslu skólagjalda, flutnings starfsmanna, sjúkrasjóðs og tungumálanáms hefur aukist á undanförnum árum umfram það sem áætlanir gerðu ráð fyrir.
401     Alþjóðastofnanir.
        1.85 Friðargæsla.
Lagt er til að 43 m.kr. verði felldar niður af þessum lið.
611     Útflutningsráð Íslands.
        1.10 Útflutningsráð Íslands.
Lögð er til 9 m.kr. viðbótarfjárveiting. Í endurskoðaðri áætlun um ríkistekjur af markaðsgjaldi er gert ráð fyrir auknum tekjum og því er farið fram á ráðstöfun þeirra í samræmi við lög.

07 Félagsmálaráðuneyti

331
     Vinnueftirlit ríkisins.
        1.01 Vinnueftirlit ríkisins.
Lögð er til 5 m.kr. hækkun á fjárveitingu stofnunarinnar í kjölfar endurskoðunar á áætlun um ríkistekjur af hlutdeild í tryggingagjaldi.
400     Barnaverndarstofa.
        1.12 Heimili fyrir börn og unglinga.
Gerð er tillaga um 12,5 m.kr. fjárveitingu til Götusmiðjunnar – Virkisins til þess að ganga frá þjónustusamningi við félagsmálaráðuneytið í samræmi við aukið umfang.
711     Styrktarfélag vangefinna.
        1.20 Sambýli.
Gerð er tillaga um 8 m.kr. aukafjárveitingu til Styrktarfélags vangefinna. Upphæðinni er ætlað að gera kleift að ljúka þjónustusamningi við félagsmálaráðuneytið sem er á lokastigi.
801     Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
         1.10 Jöfnunarsjóður sveitarfélaga. Jöfnunarsjóður fær 1,4% af skatttekjum ríkisins og samkvæmt endurskoðaðri tekjuáætlun hækka tekjur ríkisins af beinum og óbeinum sköttum um 3 milljarða kr. Framlag af beinum og óbeinum sköttum hækkar því um 30 m.kr. Heildarframlag af skatttekjum mun því skila sjóðnum tæplega 2.300 m.kr.
        

08 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

208
     Slysatryggingar.
         1.16 Kaup og aflahlutur sjómanna. Gerð er tillaga um 33 m.kr. fjárveitingu til greiðslu á kaupi og aflahlut sjómanna. Greiðslur þessar eru fjármagnaðar með slysatryggingagjaldi á laun sjómanna en færast jafnframt sem ríkistekjur. Afkoma ríkissjóðs er því óbreytt eftir sem áður.
301     Landlæknir.
        1.01 Yfirstjórn.
Gerð er tillaga um 30 m.kr. aukaframlag til að bregðast við uppsöfnuðum rekstrarvanda embættisins en fjármál þess hafa verið endurskipulögð. Enn fremur er gerð tillaga um 30 m.kr. tímabundið framlag í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2001 til sama verkefnis.
358     Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri.
        1.01 Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri.
Gerð er tillaga um 41,4 m.kr. aukafjárveitingu til að leiðrétta framlag til að mæta uppsöfnuðum rekstrarhalla sjúkrahússins samkvæmt mati Ríkisendurskoðunar á síðasta ári. Mat Ríkisendurskoðunar var byggt á upplýsingum stjórnenda sjúkrahússins um fjárhagsstöðu þess. Í ljós hefur komið að ónotað framlag til stofnframkvæmda hafði verið talið með rekstrartekjum sjúkrahússins og uppsafnaður halli árið 1999 var því lægri sem fjárveitingunni nemur.
         6.01 Tæki og búnaður. Lagt er til að Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri verði veittar 11 m.kr. upp í kostnað vegna nýrrar vararafstöðvar sem nauðsynlegt reyndist að kaupa í tengslum við framkvæmdir í nýrri álmu sjúkrahússins.
371     Ríkisspítalar.
        1.01 Ríkisspítalar.
Lögð er til 173,4 m.kr. aukafjárveiting til að leiðrétta framlag til að mæta uppsöfnuðum rekstrarhalla sjúkrahússins samkvæmt mati Ríkisendurskoðunar á síðasta ári. Mat Ríkisendurskoðunar var byggt á upplýsingum stjórnenda sjúkrahússins um fjárhagsstöðu þess. Í ljós hefur komið að ónotað framlag til stofnframkvæmda hafði verið talið með rekstrartekjum sjúkrahússins og uppsafnaður halli árið 1999 var því lægri sem fjárveitingunni nemur.
373     Sjúkrahús í Reykjavík.
        1.01 Ýmis skipulags- og rekstrarverkefni.
Lagt er til 150 m.kr. aukaframlag til að standa undir kostnaði við sameiningu Ríkisspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur. Gerð er tillaga um tímabundið 150 m.kr. framlag til sama verkefnis í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2001.
385     Framkvæmdasjóður aldraðra.
        6.01 Stofnkostnaður og endurbætur.
Endurskoðuð áætlun um ríkistekjur árið 2000 gerir ráð fyrir 15 m.kr. tekjuauka af gjaldi í Framkvæmdasjóð aldraðra skv. 12. gr. laga um málefni aldraðra.
431     Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands.
        6.21 Stofnkostnaðarstyrkur til heilsuhælis Náttúrulækningafélags Íslands.
Gerð er tillaga um 6 m.kr. aukafjárveitingu til stofnunarinnar vegna skemmda á vatnsveitu og bilana á gömlum heitavatnslögnum.
510     Heilsuverndarstöðin í Reykjavík.
        1.01 Heilsuverndarstöðin í Reykjavík.
Gerð er tillaga um 12,5 m.kr. aukafjárveitingu til að leiðrétta framlag til að mæta uppsöfnuðum rekstrarhalla Heilsuverndarstöðvarinnar samkvæmt mati Ríkisendurskoðunar á síðasta ári. Mat Ríkisendurskoðunar var byggt á upplýsingum stjórnenda Heilsuverndarstöðvarinnar um fjárhagsstöðu hennar. Í ljós hefur komið að ónotað framlag til endurbóta á Miðstöð mæðraverndar hafði verið talið með rekstrartekjum og uppsafnaður halli árið 1999 var því lægri sem fjárveitingunni nemur.
777     Heilbrigðisstofnun Austurlands.
        1.01 Heilsugæslusvið
og 1.11 Sjúkrasvið. Lagt er til að veitt verði 15 m.kr. aukaframlag til að standa undir kostnaði við stofnun Heilbrigðisstofnunar Austurlands og samhæfa starfsemi heilbrigðisstofnana á svæðinu undir eina yfirstjórn, 5 m.kr. á heilsugæslusvið og 10 m.kr. á sjúkrasvið.

09 Fjármálaráðuneyti

721     Fjármagnstekjuskattur.
        1.11 Fjármagnstekjuskattur.
Gerð er tillaga um að fjárheimild vegna fjármagnstekjuskatts sem ríkissjóður greiðir af eigin vaxtatekjum og söluhagnaði eigna verði lækkuð um 380 m.kr. Skýrist það af því að gert er ráð fyrir að sala á eignum ríkisins verði minni á árinu en fyrirhugað var í fjárlögum.
999     Ýmislegt.
        1.71 Aðstoð vegna snjóflóðs á Flateyri.
Gerð er tillaga um 50 m.kr. aukafjárveitingu sem varið verði til uppbyggingar og endurnýjunar gatna á Flateyri við Önundarfjörð. Uppbygging nútímalegs gatnakerfis í þorpinu hafði einkum farið fram í efri hluta þess á árunum áður en snjóflóðið féll. Þar er byggð nú lítil og nýtist sú fjárfesting því lítið eða ekki. Við flutning byggðarinnar niður á eyrina mæðir meira en áður á götum sem eru í afar lélegu ásigkomulagi og er fjárveitingin ætluð til að byggja upp og lagfæra götur á neðanverðri eyrinni.
         1.75 Aðstoð vegna jarðskjálfta á Suðurlandi. Gerð er tillaga um að framlag vegna jarðskjálfta á Suðurlandi verði hækkað um 150 m.kr. en í frumvarpinu hefur þegar verið gert ráð fyrir framlagi að fjárhæð 200 m.kr. Meginhluti framlagsins er ætlaður til að útvega þeim bráðabirgðahúsnæði sem misstu hús sín í jarðskjálftunum. Eftir nánara mat hefur komið í ljós að útvega þarf meira húsnæði til bráðabirgða en í fyrstu var gert ráð fyrir. Þá hefur orðið tjón hjá sveitarfélögum og fyrirtækjum á svæðinu. Loks þarf að mæta nokkrum kostnaði hjá rannsóknastofnunum vegna aukinnar vöktunar og rannsókna. Á móti þessum auknu útgjöldum kemur síðan andvirði húsanna þegar þau verða seld.

10 Samgönguráðuneyti

190
     Ýmis verkefni.
        1.12 Vetrarsamgöngur og vöruflutningar.
Lögð er til 10 m.kr. viðbótarfjárveiting vegna samnings um áætlunarflug. Samgönguráðuneytið gerði samkomulag við Flugfélag Íslands byggt á útboði um flug á Norðurlandi frá 1. september til ársloka 2000. Samkomulagið kveður á um að greidd verði 80% af andvirði hagstæðasta tilboðs á samningstíma, eða tæplega 13,4 m.kr. Miðað við þær fjárveitingar sem ráðuneytið hefur til ráðstöfunar á árinu vantar 10 m.kr. fjárveitingu vegna samningsins.

12 Viðskiptaráðuneyti

402
     Fjármálaeftirlitið.
        1.01 Fjármálaeftirlitið.
Gerð er tillaga um 7,4 m.kr. lækkun gjalda í samræmi við endurskoðaða rekstraráætlun fyrir árið 2000. Um er að ræða lækkun launakostnaðar miðað við áætlun fjárlaga þar sem ráðningu sérfræðinga hefur verið frestað. Jafnframt er gert ráð fyrir að ríkistekjur af eftirlitsgjaldi til fjármögnunar á starfseminni aukist um 6,9 m.kr.

Alþingi, 3. des. 2000.



Jón Kristjánsson,


form., frsm.


Einar Oddur Kristjánsson.


Árni Johnsen.



Hjálmar Jónsson.


Arnbjörg Sveinsdóttir.


Ísólfur Gylfi Pálmason.


Kristján Pálsson.