Ferill 656. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Nr. 23/126.

Þskj. 1292  —  656. mál.


Þingsályktun

um staðfestingu samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2001.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirtalda samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2001 sem gerðir voru í Skagen 18. október 2000:
     1.      Sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2001.
     2.      Bókun um sérstakar verndunarráðstafanir með tilliti til stjórnunar veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum á árinu 2001.
     3.      Samning milli Íslands og Færeyja um stjórn veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2001.
     4.      Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands, efnahagslögsögu Noregs og fiskveiðilögsögu Jan Mayen á árinu 2001.
     5.      Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2001.

Samþykkt á Alþingi 11. maí 2001.