Ferill 737. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.


126. löggjafarþing 2000–2001.
Þskj. 1327  —  737. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um kjaramál fiskimanna og fleira.

Frá meiri hluta sjávarútvegsnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Sævar Gunnarsson og Hólmgeir Jónsson frá Sjómannasambandi Íslands, Grétar Mar Jónsson, Guðjón Ármann Einarsson og Benedikt Valsson frá Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Helga Laxdal og Guðmund Ragnarsson frá Vélstjórafélagi Íslands, Friðrik J. Arngrímsson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna og Hönnu Sigríði Gunnsteinsdóttur frá félagsmálaráðuneyti. Þá átti nefndin símafund með Pétri Sigurðssyni hjá Alþýðusambandi Vestfjarða.
    Með frumvarpinu er lagt til að bann verði lagt við verkfalli aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, auk verkbanna aðildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna gagnvart aðildarfélögum Alþýðusambands Vestfjarða, er hófst 16. mars sl. Verkfallinu var frestað með lögum 19. mars sl. til 1. apríl sl. Sama gilti um verkbann það er félög og samtök útvegsmanna settu á fiskimenn frá og með 16. mars sl. Vinnustöðvun hófst þá aftur og hafði staðið óslitið í á sjöttu viku þegar vélstjórar og útgerðarmenn undirrituðu kjarasamning 9. maí sl.
    Samningar hafa verið lausir frá 15. febrúar 2000 þegar lög nr. 10/1998, um kjaramál fiskimanna, féllu úr gildi. Á þeim tíma sem síðan er liðinn hafa samningsaðilar ekki náð árangri í samningaumleitunum, að frátöldum áðurnefndum samningi vélstjóra og útvegsmanna.
    Frumvarpið gerir ráð fyrir að samningsaðilum verði gefinn frestur til 1. júní nk. til að ljúka samningum. Hafi samningar ekki tekist fyrir þann tíma er lagt til að gerðardómi þriggja manna, sem tilnefndir verði af Hæstarétti, verði falið að taka ákvarðanir varðandi kjaramál félaga í áðurnefndum félögum. Frumvarpið gerir ráð fyrir að gerðardómurinn hafi við ákvarðanir sínar hliðsjón af samningi um breytingar á kjarasamningi milli Samtaka atvinnulífsins vegna aðildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna og Vélstjórafélags Íslands frá 9. maí sl. og öðrum kjarasamningum sem gerðir hafa verið á almennum vinnumarkaði á undanförnum mánuðum eftir því sem við á.
    Enn fremur gerir frumvarpið ráð fyrir að breytingar verði gerðar á lögum nr. 38/1990, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 13/1998, um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna, og lögum nr. 99/1999, um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi, auk þess sem lög nr. 11/1998, um Kvótaþing, falli úr gildi. Framangreind lög voru sett samhliða lögum nr. 10/1998 sem bönnuðu vinnustöðvun sjómanna og útvegsmanna frá 27. mars 1998 jafnframt því að kveða á um kjaramál fiskimanna. Ákvæðin miðuðu að því að skapa umgjörð um kjaramál fiskimanna og voru sniðin að aðstæðum á þeim tíma.



Prentað upp.

    Við umfjöllun nefndarinnar um málið kom fram að sú tilhögun að gerðardómurinn skuli taka mið af samningi um breytingar á kjarasamningi milli Samtaka atvinnulífsins vegna aðildarfélaga Landssambands íslenskra útvegsmanna og Vélstjórafélags Íslands hafi mætt mikilli andstöðu. Þannig hafi fulltrúar Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands lýst sig algerlega andvíga þeirri tilhögun. Leggur því meiri hlutinn til þá breytingu að gerðardómurinn skuli í störfum sínum hafa til hliðsjónar kjarasamninga sem gerðir hafa verið á undanförnum mánuðum að því leyti sem við á og almenna þróun kjaramála, að teknu tilliti til sérstöðu aðila sem nefndir eru í 1. gr. Þá leggur meiri hlutinn til að við ákvarðanir um gildistíma geti gerðardómurinn haft til hliðsjónar gildistíma annarra skyldra kjarasamninga.
    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:



    Við 3. gr. Greinin orðist svo:
    Gerðardómurinn skal við ákvörðun sína samkvæmt lögum þessum hafa til hliðsjónar kjarasamninga sem gerðir hafa verið á undanförnum mánuðum að því leyti sem við á og almenna þróun kjaramála, auk þess að taka mið af sérstöðu þeirra aðila sem nefndir eru í 1. gr.
    Ákvarðanir gerðardómsins skv. 1. mgr. skulu vera bindandi frá gildistöku laga þessara og skal gerðardómurinn hafa lokið störfum fyrir 1. júlí 2001. Hann skal ákveða gildistíma ákvarðana sinna og getur í því sambandi haft hliðsjón af gildistíma annarra skyldra kjarasamninga.


Alþingi, 15. maí 2001.

Einar K. Guðfinnsson,
form., frsm.
Vilhjálmur Egilsson.
Hjálmar Árnason.

Kristinn H. Gunnarsson.
Árni R. Árnason.