Forseti (Ísólfur Gylfi Pálmason):
Áður en gengið verður til dagskrár fer fram umræða utan dagskrár um heimsmeistaramótið í knattspyrnu og þjónustu Ríkisútvarpsins. Málshefjandi er hv. þm. Kristján L. Möller. Hæstv. menntmrh. Björn Bjarnason verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.