Þuríður Backman (andsvar):
Herra forseti. Ef það er tilfellið að hér sé verið að leggja til að inni í matvöruverslunum verði heimilt að selja í ákveðnu hillurými léttvín, bjór og sterka drykki verð ég að segja að þetta frv. til laga um breytingu á lögum um verslun með áfengi og tóbak er enn þá verra en það þó virtist við fyrstu sýn.