2002-02-06 14:19:08# 127. lþ. 71.92 fundur 313#B bréf Verslunarráðs til viðskiptaráðherra um rannsókn Samkeppnisstofnunar á ólöglegu verðsamráði olíufélaganna# (aths. um störf þingsins), viðskrh.
[prenta uppsett í dálka] 71. fundur, 127. lþ.

[14:19]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):

Hæstv. forseti. Eins og ég hef látið koma fram verður þessu erindi svarað mjög fljótlega og það þarf enginn að hafa áhyggjur af því að sú sem hér stendur láti þvinga sig til eins eða neins. Þetta er bara spurning um hvert er hlutverk ráðuneytisins í þessum efnum. Yfir það verður farið og þegar við höfum fengið niðurstöðu sem að sjálfsögðu verður lögfræðileg þá verður erindi Verslunarráðsins svarað. Svo einfalt er það.