Pétur H. Blöndal (andsvar):
Herra forseti. Það er mikill munur á því hvort deilt er út styrkjum og gjöfum til útvalinna einstaklinga sem verða að búa úti á landi eða eitthvað því um líkt og vera í verkefnum sem eru viðkomandi ákvörðunaraðila þóknanleg, það er mikill munur á því eða þegar gefin er almenn heimild til skattalækkunar.
Þegar menn tala um skatta á fjármagnstekjur, þá voru þær ýmist ekkert skattaðar, tvískattaðar eða margskattaðar eða háskattaðar þannig að fjármagnsmarkaðurinn var allur í rúst áður en fjármagnstekjuskatturinn var tekinn upp og tekinn upp samræmdur skattur á allar fjármagnstekjur. Það var mikið gæfuspor og hefur orðið íslensku atvinnulífi mikil lyftistöng eins og við sjáum t.d. á nánast engu atvinnuleysi hér á landi.