Arnbjörg Sveinsdóttir (andsvar):
Hæstv. forseti. Ég viðurkenni að það var ekki góður svipur á þessu hjá mér, að víkja að máli hv. þm. Ögmundar Jónassonar í andsvari við annan þingmann og biðst ég afsökunar á því.
Hitt er annað mál að hv. þm. tók undir að uppbygging í Hvalfirði hefði haft jákvæð áhrif á byggðaþróun á því svæði. Ég gat ekki skilið hann öðruvísi. Þess vegna sló það mig dálítið, miðað við málflutning hans hér varðandi áhrifin sem álver á Austurlandi hefði á byggðaþróun þar, að hann gæti ekki litið þessa hluti sömu augum hvort sem um væri að ræða uppbyggingu atvinnulífs á Austurlandi eða uppbyggingu atvinnulífs í Hvalfirði og á Vesturlandi. Ég furða mig enn á að hv. þm. skuli líta það svo ólíkum augum hvort fólki fjölgar á Austurlandi eða á Vesturlandi.