Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Það hefur legið fyrir síðan í morgun að hér yrði kvöldfundur og lokið umræðu um þau mál sem eru á dagskrá. Hæstv. iðnrh. hefur forræði þessa máls og er búin að sitja við þessa umræðu. Það hefði verið eðlilegt, þar sem óskað er eftir því að aðrir ráðherrar verði viðstaddir, að beðið hefði verið um það áður en umræðan hófst, en ekki í miðri umræðu.