Kolbrún Halldórsdóttir (um fundarstjórn):
Herra forseti. Undir þessum lið um fundarstjórn forseta er eðlilegt að hv. þm. verði svarað þeim óskum sem lagðar voru fram í umræðum sem áður fóru fram undir þessum lið, hvort hæstv. ráðherrar sem kallað hefur verið eftir til umræðunnar, eru á leiðinni eða hvort við eigum von á því að halda umræðunni áfram án viðveru þeirra ráðherra sem kallaðir hafa verið hingað, þ.e. hæstv. samgrh., fjmrh. og forsrh.