Líftækniiðnaður

Þriðjudaginn 12. mars 2002, kl. 18:09:16 (6086)

2002-03-12 18:09:16# 127. lþ. 95.14 fundur 548. mál: #A líftækniiðnaður# frv., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 95. fundur, 127. lþ.

[18:09]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins bregðast við þessu sem kom fram hjá hv. þm. í sambandi við gagnagrunn á heilbrigðissviði vegna þess að mér fannst hann taka kannski aðeins of mikið upp í sig að segja að ákveðið fyrirtæki hefði einokun á upplýsingum. Það er ekki þannig að mínu mati að fyrirtækið hafi einokun á öllum sjúkraskýrslum í landinu heldur hafa að sjálfsögðu aðrir aðgang að þeim þannig að málið er ekki nákvæmlega vaxið eins og hv. þm. tjáði sig í ræðustól.