Eldi nytjastofna sjávar

Fimmtudaginn 21. mars 2002, kl. 17:37:37 (6441)

2002-03-21 17:37:37# 127. lþ. 102.9 fundur 333. mál: #A eldi nytjastofna sjávar# frv. 33/2002, SvanJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 102. fundur, 127. lþ.

[17:37]

Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það sem mig langar til að biðja ráðherra um að svara á þessum stutta tíma er í fyrsta lagi: Hver er sá reginmunur á eldi vatnafiska og sjávarfiska sem að hans mati réttlætir að eftirlit með þeim sé í tveimur ráðuneytum?

Í öðru lagi: Metur hann það svo að eldi sjávarfiska sé sjávarútvegur?