Svanfríður Jónasdóttir (andsvar):
Herra forseti. Ef hæstv. ráðherra lítur svo á að eldi nytjastofna sjávar sé sjávarútvegur, hvernig lítur hann þá á erlenda fjárfestingu þegar kemur að henni ef áhugi reynist fyrir slíku, þegar um er að ræða slíkt eldi?