Forseti (Halldór Blöndal):
Áður en umræða hefst er rétt að taka fram að samkomulag er milli þingflokka um að þessi umræða standi í klukkustund. Umferðir verða tvær og hefur hver þingflokkur til umráða samtals 12 mínútur, að hámarki átta mínútur í fyrri umferð. Röð flokkanna er þessi: Samfylking, Framsfl., Vinstri hreyfingin -- grænt framboð, Sjálfstfl., og Frjálslyndi flokkurinn.